Launþeginn hjá ríkinu, Árni Páll Árnason er ekki starfi sínu vaxinn.

Burt með Árna strax. Hann er að klúðra málum þúsunda manna og kvenna með getuleysi sínu. Hann er ekki hæfur til að meta stöðu mála og hefur heldur ekki manndóm í sér til að viðurkenna það og stíga til hliðar.

Það eru svona menn sem eiga ekki að koma nálægt ríkisrekstri sem kallar á ábyrga stjórnun og kunnáttu í faginu.


mbl.is Sendir Árna Páli opið bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr Heyr.... Burt með strákinn. Hann ætlaði að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.

Hann Ásmundur Einar á að gegna fyriverandi samflokksmönnum og segja af sér. Það er eins og hann hafi ekki sómatilfinningu til að segja af sér.

Ég vil bara þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB en ekki ákvörðun Ásmundar Einars um að hætta viðræðum um ESB aðild.


mbl.is Vilja að Ásmundur Einar segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar brast von um samstarf D og S lista. Hanna og Dagur! Talist við og myndið nýja borgarstjórn

Hvað ætlar Dagur að ganga langt í þessari þrjósku gegn virku samstarfi Sjálfstæðis og Samfylkingunnar? Hann er að eyðileggja stjórnmálaferil sinn og stórskaða Samfylkinguna með þessum persónulega ágreiningi við Hönnu Birnu.
mbl.is Hættir sem forseti borgarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla menn aldrei að læra einfalda hluti eins og það að samkeppni byggist ekki á samráði.

Hvenær ætlar þessi viðskiptaheimur að skilja það að verslun og almenn samkeppni eru með leikreglur sem menn fara eftir eins og í flestu öðru. Það er nánast enginn af þáttum viðskipta sem ekki hefur farið í rannsókn samkeppniseftirlitsins.

Ég tel að það verði ekki breying á þessu fyrr en sektin verður dæmd á stjórnendur en ekki fyrirtækin sjálf. Að dæma stjórnanda til að greiða háar sektir þá er ég all viss um að það stoppar strax. Það hefur enginn bolmagn til að greiða tugi milljóna í sekt af launum sínum eftir skatt.

Það er spurning hvort ekki eigi að beita þessum fyrirtækjum sniðgöngu um viðskipti við þau ef þau verða uppvís af samráði.


mbl.is Grunur um samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna! fáðu Dag B. Eggertsson með í nýjan meirihluta.

Er ekki komin tími til að slíðra sverðin Hanna Birna og fara á fund Dags B. og semja um nýjan meirihluta. Þetta er ekkert grín lengur.

Þið skuldið Reykjavíkingum starfhæfa stjórn í Reykjavík. Eru ekki allir sammála?


mbl.is Þessi meirihluti er óhæfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er það sem koma skal: Ísland í ESB - Öllum til farsældar.

Ég fæ þægindatilfinningu þegar svona jákvæðar fréttir eru birtar í fjölmiðlum. Þegar umsóknin hefur verið samþykkt af kjósendum í þjóðaratkvæðagreiðslu munum við sjá ESB fánann víða einnig á skipum, bátum og bílum okkar.
mbl.is Fáni ESB á varðskipinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danske Bank spáði hruninu 2008. Ingibjörg Sólrún fór í víking til að kveða það niður.

Ég ber mikla virðingu fyrir Danske Bank og hans starfsfólki. Þessi greining er ávísun á velferð ef við höldum ótrauð áfram á sömu braut. Eitt sem ég hjó eftir var þessi aukning á atvinnuleysi. Það þarf að breyta því ef hægt er. Útfluttning verður að auka og sér í lagi útfluttningur á atvinnuleysi. Noregur er í mikilli þörf fyrir starfsfólk og er það frábært að þeir vilji taka við atvinnulausum Íslendingum og þar með viðhalda þeirra starfsþekkingu sem annars færi forgörðum í atvinnuleysi hér heima.
mbl.is Horfið fram á veginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ennþá til 90% upp í kröfuna hjá Landsbankanum þrátt fyrir nei-ið.

Það hefur ekkert breyst í þessu máli annað en að við þurfum ekki að borga vexti af kröfunni eins og samningurinn boðaði. Það eru til peningar í þrotabúinu fyrir Breta og Hollendinga og er hluti af þeim peningum á vaxtalausum reikningum hjá Englands banka. Það þýðir að við eigum að missa af vöxtum af eign þrotabúsins hjá Bretum en samt borga þeim vexti af kröfu í þetta sama fjármagn.

Þetta nei sparar okkur milljarða í vexti og eyðir óvissunni um óútfylltan víxil til handa Bretum og Hollendingum.


mbl.is Vonsvikinn vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GSM sími bjargar oft fólki í slíkri stöðu.

Munum eftir GSM símanum næst.
mbl.is Fundust heilir á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju orði sannara. Gullfoss er athyglisverðasti staðurinn sem erlendir gestir heimsækja hér á landi.

img_0266.jpgÍ mörg ár hefur Gullfoss staðið upp úr sem eftirtektarverðasti staður sem erlendir gestir heimsækja. Margir halda því fram að hann sé sá fallegasti í veröldinni. Ég er nú hjartanlega sammála þeim.Það þarf að laga til í kringum svæðið og girða af með öflugri girðingu svo fólk fari sér ekki í voða þar upp frá.
mbl.is Gullfoss með fallegustu fossum heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband