Það var Guðs mild að Geir Haarde er hagfræðingur sem sá fyrir hvað þyrfti að gera til að bjarga þjóðinni frá gjaldþroti. Það er annað upp á teningnum er varðar SJS. Hann er í verklegu námi í hagfræði án leiðbeinanda. SJS er að skynja það í dag, þremur og hálfu ári frá hruni, hvernig væri rétt að taka á afleiðingum hrunsins.
Í morgun í þættinum "Á Sprengisandi" lofaði hann Geir fyrir neyðarlögin og segir að þau hafi bjargað þjóðinni frá gjaldþroti. Skynsemin er að læðast inn hjá SJS og miklar líkur eru á því að hann kjósi með ESB þegar samningar hafa verið lagðir fyrir þjóðina.
Ég styð Geir Haarde 100% og er sannfærður um að hann verði sýknaður af ákærum sem eru eins og gatasikti. Hans verður minnst fyrir þennan gjörning í framtíðinni.
Málsvörn til stuðnings Geir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessir spilltu, heimsku og vanhæfu pólitíkusar heimta alltaf sérmeðferð í öllu. Frekar hallærislega aumingjalegt. Hann fer bara aftur í pólitík enda dæmdir þjófar og ódæmdir sem fylla þann auma FLokk.
Guðmundur Pétursson, 5.6.2011 kl. 22:28
Neyðarlögin voru undirbúin og samin í Seðlabankanum en þangað voru kallaðir ýmsir sérfræðingar óháðir bönkunum
Guðmundur Kristinn Þórðarson, 6.6.2011 kl. 00:03
Guðmundur Kristinn. Hver skipaði þessa menn? Það var Geir H Haarde.
Guðlaugur Hermannsson, 7.6.2011 kl. 07:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.