22.3.2011 | 14:25
Hverju orði sannara. Gullfoss er athyglisverðasti staðurinn sem erlendir gestir heimsækja hér á landi.

![]() |
Gullfoss með fallegustu fossum heims |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2011 | 14:25
![]() |
Gullfoss með fallegustu fossum heims |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svo sannarlega er Gullfoss með fallegustu fossum heims. Hvort hann sé athyglisverðasti staðurinn á Íslandi sem erlendir ferðamenn upplifa er eg sem leiðsögumaður ekki sammála. Mjög margt heillar erlenda ferðamenn: Stuðlabergsklettarnir við Arnarstapa, fjaran við Hellna og á Djúpalónssandi, Hraunfossar í Borgarfirði, Fjallfoss eða Dynjandi í Arnarfirði, hraunin við Leirhnjúk og Dimmuborgir, Hengifoss á Austurlandi, Vatnajökulþjóðgarður, Jökulsárlónið, Fjarðárgljúfur, Skógafoss, Seljalandsfoss, Dynkur í Þjórsá, Gjáfoss og Háifoss í Þjórsárdal, Þjórsárver og margt, margt fleira.
Erlenda ferðafólkið er með mjög mismunandi væntingar. Sumum finnst jafnvel þögnin vera eitt það merkilegasta sem það upplifir. Kannski norðurljósin.
Allt eru þetta mikil djásn sem við verðum að varðveita eftir mætti. Sumt er komið ansi nálægt eyðileggingu eins og Dynkur.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 22.3.2011 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.