4.8.2010 | 09:17
Glannaskapur pabbans?
Það er auðvelt að villast þarna. Samkvæmt leiðbeiningum í ferðabæklingum frá íslenskum ferðaskipuleggjendum er ferðamönnum bent á að ef þeir villist í íslenskum skógum þá sé besta ráðið að standa upp. Í tilfelli drengsins þá hefur hann líklegast ekki verið í mjög háu kjarrlendi sem hefur auðveldað honum að rata til pabba síns. Það væri hægt að koma í veg fyrir svona óhöpp með því að hnýta 10 metra langa snúru í buxnastreng barna með helíum blöðru í hin endann svo auðvelt verði að fylgjast með barninu á meðan farinn er 18 holu hringur í golfi.
Átta ára fór villur vega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.