Fitch er ekki faglega þenkjandi fyrirtæki, samanber Kaupthing var metið AAA.

Það er mikið rætt um framtíð fyrirtækja á borð við Fitch. Þessi fyrirtæki eru gerð út sem óháð matsfyrirtæki, er ekki gert ráð fyrir því að þau verði langlíf. Það sem er hugsanlegt að taki við eru opinberar stofnanir sem sem myndu starfa á sama grundvelli. Þetta myndi tryggja ábyrgara eftirlit og mat sem mark væri takandi á. Ef FME væri bæði eftirlitsstofnun og um leið matsaðili fyrir fjármálafyrirtæki, þá væri eftirlit með rekstri og greiðslugetu samhangandi.

Hvernig getur íslenska ríkið fallið í mati fyrir það eitt að koma í veg fyrir skuldbindingu umfram greiðslugetu sem mögulega gæti verið á ábyrgð annara en íslenska ríkisins. Hefði íslenska ríkið verið sett í sama ruslflokk ef forsetinn hefði staðfest lögin? Það hefði verið raunhæfara.


mbl.is Kemur á óvart hve fljótt Fitch brást við fréttunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er líkt með íslensku og bresku ríkisstjórnunum?

Þær eru ekki í sambandi við umhverfi sitt. Það er sama hvað hver segir á opinberum vettvangi, þeir hlusta ekki á og þverskallast í þeirra eigin fílabeinsturnum.

Ég er bjartsýnn á að þessi deila verði leyst með skynseminni að leiðarljósi.


mbl.is Ekki setja Ísland í skuldafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J fáðu Svavar Gestsson með þér, þetta getur ekki orðið verra.

Nú ríður á að Steingrímur J standi sig á endasprettinum á hans pólitísk ferli. Svavar er ábyrgur fyrir klúðrinu og verður að viðurkenna vanmátt sinn fyrir Bretum og fara þess á leit að þeir taki upp samningaviðræður aftur.

Kaldhæðnin í þessu öllu saman er sú að Bretar kröfðust sömu vaxta fyrir Icesave lánin og Landsbankinn bauð innistæðueigendum. Ef við getum boðið háa innlánsvexti þá er okkur ekki skotaskuld að greiða sömu vexti til þeirra.


mbl.is Steingrímur til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB yrði greiði gerður ef Ísland gengi í ESB. Að hóta útilokun er rugl.

Ísland er ríkt af hollum fæðuauðlindum, hreinu vatni og ekki síst olíuauðlindum sem gætu verið stærri en allar olíuauðlindir Norðmanna.

Þessum ESB aðildarumsóknarferli má líkja við par í tilhugalífi þar sem ESB er maðurinn og Ísland er konan með gríðarlegan heimamund. Hver mundi neita að ganga í hjónaband með konu sem fylgja öll þessi auðæfi?

Höldum ró okkar og tökum engar skyndiákvarðanir varðandi Icesave. Þetta mun all lagast þegar reiðin sjattnar í pólitíkusum Breta og Hollendinga.


mbl.is ESB metur Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er skynsemin?

Til hvers er verið að ögra umheiminum með þessum hvalveiðum? Hver er tilgangurinn? Hvað vakti fyrir Einari Kr, Guðfinnssyni þegar hann leyfði þessar veiðar? Var það atkvæðasmölun?
mbl.is Lítið selst úr landinu af hval
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er frábær grein sem Jón skrifaði í Independent.

Þessi grein er nauðsynleg fyrir okkar málstað og mun vonandi opna hug Breta og Hollendinga fyrir sanngjarnri laus á þessu klúðri FME og Seðlabanka Íslands. Við þurfum fleiri svona þungaviktarkalla til að verja málstað okkar erlendis.
mbl.is Íslendingar telja lánakjörin óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og gömlu allaböllunum er ekki treystandi í fjármálum fyrir hönd þjóðarinnar.

Fyrst klúðrar Svavar Gestsson Icesave síðan bætir Ólafur Ragnar Grímsson um betur og klúðrar lánshæfismati og lánamöguleikum okkar. Hvar er skynsemi Samfylkingarinnar í þessu máli? Úti á þekju?
mbl.is Ákvörðun forsetans „mikið reiðarslag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarslit um áramót?

Þetta klúður Svavars Gestssonar mun kosta stjórnarslit. Steingrímur er nauðbeigður til að segja af sér. Þetta er hans klúður og hann ber ábyrgð á því. Geir og Ingibjörg sögðu af sér eftir hrunið og báru með því ábyrgð á því.
mbl.is Fjárlaganefnd fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn Steingríms J væntanleg í dag?

Skyldi afsögn Steingríms J berast Jóhönnu Sigurðardóttur í dag? Er Svavar Gestsson að toppa klúður Davíðs Oddssonar? Er Svavar Gestsson næst dýrasti embættismaður þjóðarinnar. Er greindarvísitala Svavars Gestssonar fyrir ofan lámark? Er Steingrímur J að hygla vini og flokksbróður með því að skipa hann í nefnd sem Savar hefur ekki næga greind til að sinna? Er ekki hægt að koma Svavari á blómaskreytingarnámskeið svo að skaðinn verði minni í störfum sem krefjast þeirra starfsréttinda sem blómaskreytingarnámskeiði veitir?
mbl.is Meginefnið liggur skýrt fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ísland meðal þjóða í sömu stöðu og Álftanes meðal sveitafélaga í dag?

Er möguleiki á að Ísland verði sameinað annari nágrannaþjóð eins og Álftanes mun verða sameinað Garðabæ? Hvar eru mörkin fyrir sjálfstæði þjóða? Hver tekur ákvörðun um að svo skuli verða ef sú staða kemur upp? Er það AGS? Ekki er það Alþingi okkar eins of sundrungin er þar. Þetta er vert umhugsunarefni fyrir okkur eins og staðan er í dag.
mbl.is Fyrningarfrestur þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband