Voru þetta þær Kristín, Gerður og Hallveig í hvítu pelsunum sínum?

Það fréttist hingað suður að þrjár konur hafi farið gangandi heim frá vinnustað þeirra seint um nótt eftir viðburðaríkt jólahlaðborð. Einnig bárust þær fréttir að jólaglöggið og allar piparkökurnar hefðu klárast þá um nóttina.


mbl.is Tilkynning um ísbirni reyndist vera hrekkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er frábær lausn. Skattleggjum lífeyrissparnað við öflun tekna.

Þegar greiðsla í lífeyrissjóð er skattlögð strax, þá er minni möguleiki á því að ríkið verði af skatttekjum þegar lífeyrissjóðir tapa lífeyri sjóðsfélaga allt upp í 700 milljarða. Af þessari upphæð hefði ríkið fengið 250 milljarða í skatt. Þessir 250 milljarðar eru glataðir og koma aldrei til baka og því síður 450 milljarðarnir til lífeyrissjóðsfélaganna.
mbl.is Vilja lækka skatta um 40 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir þeir ráðherrar sem voru í "hrunstjórninni" víki líka úr ríkisstjórninni.

Það er princip mál að allir ráðherrar þessarar ríkisstjórnar sem áttu sæti í hrunstjórninni víki með Steingrími og Jóhönnu.
mbl.is Vilja að Jóhanna og Steingrímur víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerum Sólheima að þorpi með stöðu fríríkis.

Með því að gera Sólheima að fríríki er hægt að fá gott fólk til starfa með íbúunum á grundvelli sjálfbærnis. Það er hægt að gera Sólheima að framleiðslusamfélagi eins og það er nú í dag. Með þessu formi er hægt að auka framleiðsluna til muna og skapa afkomu fyrir íbúanna svo þeir geti vel við unað. Skattar yrðu eins og hjá öllum öðrum en útsvar væri ekki í þessu fríríki. Þetta þýðir þá að allir eru á launum hjá framleiðslufyrirtækinu og er afkoman á ábyrgð þeirra sem stjórna samfélaginu. Þetta hljómar kanski eins og draumaríki kommúnismans eða er það svo? Þetta er frekar eins og samyrkjubú.

"Starfsfólk" sem kæmi inn í búskapinn gæti stuðlað að lífvænlegri afkomu allra. Þetta er þvílíkt frábært svæði til ræktunar og ferðaþjónustu sem gæti gefið af sér næg laun til allra sem viðbót við örorkubætur vistmanna og verðandi íbúa nýja þorpsins.

Í dag eru margir "starfsmenn" á Sólheimum sem fá greidd laun frá ríkinu og skapa ekki verðmæti á svæðinu. Ég gat ekki betur séð en að einn vistmannanna vann aleinn baki brotnu í gróðurhúsinu í heimildarmyndinni sem sýnd var í sjónvarpinu um daginn.

Ég styð Sólheima og mun gera allt sem ég get til að koma í veg fyrir lokun þessa frábæra stað. Ef framkvæmdastjórnin getur ekki rekið Sólheima eiga þeir að segja af sér og láta annað fólk taka við sem geta komið þessu samfélagi á rétta braut.


mbl.is Ákvörðun Sólheima kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VR! Taka til í eiginn ranni fyrst.

Þetta er þarft verk sem VR er að fara í gang með. Berjumst gegn spillingaröflum hvar sem þau eru að finna.
mbl.is Verslunarmannafélag Reykjavíkur hyggst berjast gegn spillingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvergi minnst á vexti í EES samningnum. Icesave skuldin er aðeins höfuðstóll.

Það er hvergi minnst á vexti í EES samningnum vegna skuldbindingar tryggingasjóðs innistæðueigenda.

Það sem er að núna er það að neyðarlögin sem sett voru eru líklegast brot á jafnræðisreglunni. Innlendir innlánseigendur fengu ríkistryggingu á allri inneign sinni en erlendir innlánseigendur fengu aðeins lámarks tryggingu. Þetta gæti kostað okkur meira en við getum staðið undir.

Þeir sem áttu "inneignir í formi fasteigna" voru ekki tryggðir af ríkisstjórninni eins og innlánseigendur. Þetta gæti kostað málaferli eins og þeir erlendu innlánseigendur eru að fara í gang með, fljótlega að mér skilst.

Jafnræðis hefur ekki verið gætt frá því að hrunið varð í okt 2008.


mbl.is Funduðu um þinglega meðferð Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25 milljónir á mánuði í Kópavogsfangelsinu. Er þetta það sem koma skal?

Verða dómarnir í þessa veru? Hvað er að því að konan sitji inni í 24 mánuði? Eitt kjötlæri kostaði þjóf um einn mánuð í fangelsi. Hvað kostaði lærið? 25 milljónir?
mbl.is Dæmd í fangelsi fyrir fjárdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggilding endurskoðenda fellst í áreiðanleikakönnun þeirra á stöðu fyrirtækjanna.

Löggildur endurskoðandi verður að gera áreiðanleikakönnun á öllum atriðum varðandi reksturinn áður en hann skrifar undir. Með undirskriftinni eru þeir að leggja blessun sína yfir stöðuna.

Ef endurskoðandi skrifar upp á ársreikning fyrirtækis án áreiðanleikakönnunar er hann að brjóta reglur um endurskoðun. Endurskoðendur geta ekki treyst á fullyrðingar stjórnenda um stöðu fyrirtækja ef svo væri þá þyrfti ekki endurskoðendur.


mbl.is PwC: Ábyrgðin hjá stjórnendum bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur! Hvar varst þú þegar lífeyrissjóðirnir töpuðu 700 milljörðum 2008?

Það er alltaf gott að vita af svona frábærum gæslumönnum lífeyris okkar eins og Guðmundur gefur sig út fyrir að vera. Guðmundur farðu og náðu í þessa 700 milljarða sem upp á vantar.

Eru ekki sömu menn við stjórnvölinn hjá lífeyrissjóðunum? Ef svo er af hverju er þeim ekki skipt út?


mbl.is Hart sótt að lífeyrissjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja Mós er eina fagmanneskjan á Alþingi. Sérmentuð á sviði endurreisnar.

Ég skora á þingmenn að leggja við hlustir þegar Lilja Mós talar. Hún getur leiðbeint okkur í þessum þrengingum.
mbl.is Vilja að ríkið höfði mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband