20.10.2009 | 13:03
Rannsóknarnefnd Alþingis er pólitísk, en ekki Eva Joly hún er "okkar".
Pólitískar nefndir eru ekki alveg hlutlausar vegna skipunar framkvæmdarvaldsins á henni. Ráðning Evu Joly er að tilstuðlan óháðs aðila sem er Egill Helgason Silfursmiður. Hún Eva mun setja mark sitt á íslenskt þjóðfélag sem mun vara um ókomin ár. Það eru enn í gildi að hluta til lög í landinu sem kallast Jónsbók. Þessi lög sem sett verða til að koma í veg fyrir fjármálaleg landráð, mæli ég með að verði kölluð "Evubók".
Að lokum, skildi vera möguleiki á því ef einn af þessum útrásarvíkingum álpaðist til að stela kjötlæri úr kjörbúð að það leiddi til þess að hann yrði hnepptur í gæsluvarðhald? Hvað haldið þið, kæru bloggfélagar?
Eva Joly nýtur mikils trausts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert skýrleiksmaður. Evubók. Algjörlega frábært og mun ég halda því nafni á lofti um ókomin ár..
Ingibjörg Friðriksdóttir, 20.10.2009 kl. 13:24
Evubók skal það vera. ;)
Guðlaugur Hermannsson, 20.10.2009 kl. 13:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.