Breytum gjaldþrotalögunum og afhendum Bretum og Hollendingum eignasafnið strax.

Það á ekki að semja við Breta og Hollendinga um vaxtagreiðslur á Icesave þegar 200 milljarðar eru fastir inn á vaxtalausum reikningi í Englandsbanka. Það eru fyrir hendi ríkisskuldabréf upp á 200 milljarða í eignasafni Landsbankans sem er greiðsla fyrir innlent eignasafn Landsbankans.

Með því að semja um Icesave og samþykkja vaxtagreiðslur á alla upphæðina er ríkið að greiða tvöfalda vexti af þessum 200 milljörðum sem á að ganga upp í Icesave, í fyrsta lagi af ríkisskuldabréfunum og í öðru lagi af Icesave láninu sjálfu.

Íslenska ríkið er einnig að greiða vexti af þessum 200 milljörðum sem liggja vaxtalaust í Englandsbanka og er í höndum Breta.

Það sem eftir er af eignasafninu í Landsbankanum eru skuldabréf og aðrar útistandandi skuldir þar sem greiðendur eru öflug fyrirtæki og stórir bankar út í heimi. Þetta eignasafn ber vexti sem fara ekki í vaxtagreiðsluna sem ríkið þarf að inna af hendi í Icesavesamningnum.

Það sem eftir stendur á borðinu er um 10% sem gæti verið dæmið sem við verðum að taka á okkur, bæði er varðar vexti og greiðslu sjálfrar upphæðarinnar.


mbl.is Segir ekki langt í land í Icesave-deilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek heilshugar undir þessi ORÐ þín, IceSLAVE málið er í raun frekar einfalt mál, en þau skötuhjú stíga bara ekki í vitið og ná að klúðra málum endarlaust.  Þessi auma & stórhættulega ríkisstjórn þarf bara að koma sér burt og hleypa hæfari einstaklingum að - nú er mál að linni...!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 4.3.2010 kl. 11:17

2 Smámynd: Guðlaugur Hermannsson

Ég skil ekki hvernig stendur á því að þetta einfalda mál er ekki klárað á einni viku. Það sem þetta snýst um er aðeins hugsanlegur afgangur sem eftir stendur við uppgjör eignasafnsins.

Guðlaugur Hermannsson, 4.3.2010 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband