Ísland er ríkt af hollum fæðuauðlindum, hreinu vatni og ekki síst olíuauðlindum sem gætu verið stærri en allar olíuauðlindir Norðmanna.
Þessum ESB aðildarumsóknarferli má líkja við par í tilhugalífi þar sem ESB er maðurinn og Ísland er konan með gríðarlegan heimamund. Hver mundi neita að ganga í hjónaband með konu sem fylgja öll þessi auðæfi?
Höldum ró okkar og tökum engar skyndiákvarðanir varðandi Icesave. Þetta mun all lagast þegar reiðin sjattnar í pólitíkusum Breta og Hollendinga.
ESB metur Icesave-málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enginn maður nennir að reyna við litla frekjudós sem gerir ekkert annað en að tala um en að hún sé ofsa rík, falleg, hrein mey og óspjölluð og að í raun sé enginn maður nógu góður fyrir hana.
Kristinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 14:06
Og hver nennir að reyna við gamla bikkju eins og Bretland?
Landið (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 14:13
Kristinn! þú hittir kannski naglann á höfuðið þarna.
Guðlaugur Hermannsson, 6.1.2010 kl. 14:31
Já Bretland er gamalt - en það standa samt allir með "gamla herramanninum" það er bara staðreynd - ég er hræddur um að vinir þess "gamla" sanfæri hann nú endanlega um að hætta að vera að reyna við sjálfumglöðu frekjudósina.
Kristinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.